Fréttir
Lady style 2 hefst 22. mars
Skrifað: 4. mars 9:06
SalsaIceland býður upp á lady style 2 námskeið fyrir stelpurnar, námskeið sem er sett saman af Marinu Prada og kennt af Eddu Blöndal.
Hér koma dömurnar saman og dansa í friði fyrir strákunum. Við æfum okkur í að virkja allan líkamann í salsanu, því þótt herrarnir stýri fléttunum getum við alveg leikið okkur og leyft sköpunargleðinni og danstilfinningunni að njóta sín (svo lengi sem það truflar ekki flétturnar). Þá þurfum við að geta notað allan líkamann í dansinum og leikið okkur með fótavinnu og takt. Þetta lærum við á námskeiðinu, til að geta fyllt pardansinn því kryddi sem við viljum hverju sinni.
Af hverju? Þarna þurfum við ekki að bíða eftir að hafa félaga á dansgólfinu! - og gerum pardansinn persónulegri og skemmtilegri fyrir okkur!
Um er að ræða 6 skipta námskeið, kennt er í Kiwanis húsinu í 1 klst. og korter í senn. Þetta námskeið er á getustigi 2 í lady style, þ.e.a.s. fyrir dömur sem lokið hafa 1-2 námskeiðum hjá okkur, eða helgarnámskeiðum hjá Marinu í lady style. Athugið að oft er það æfinguna sem vantar til að lady style-ingið skili sér í social-dansinn, við ráðleggjum því lengra komnu dömunum okkar eindregið að skella sér líka!
Æfingatækifæri á miðvikudögum – bara í mars!
Skrifað: 25. feb. 9:15
Það er rétt, við gefum nemendum okkar tækifæri á að æfa sporin í vernduðu og þægilegu umhverfi í Kiwanis húsinu, Engjateigi 11. Tækifærin fara fram á öllum miðvikudagskvöldum marsmánaðar kl. 20:00-21:30. Engin eiginleg kennsla fer fram (þó kennari sé á staðnum), og aðgangur kostar 500kr.
Salsaveisla á Thorvaldsen
Skrifað: 24. feb. 13:00
Fimmtudaginn 11. mars kl. 20:30. Að venju býður Thorvaldsen okkur geggjuð tilboð á barnum: bjór á 500, léttvín á 700 og mojito á 1000! Ókeypis prufutími fyrir byrjendur kl. 20:30. Sjáumst á dansgólfinu á Thorvaldsen!
SalsaIceland nemendur fá 25% afslátt í karate hjá Þórshamri!
Skrifað: 24. feb. 10:02
Í samstarfi við hið öfluga karatefélag Þórshamar býður SalsaIceland nú nemendum sínum byrjendanámskeið í karate með verulegum afslætti. Næstu byrjendatímar fullorðinna (18+) eru á laugardaginn 27. feb. kl 13, þriðjudaginn 2. mars kl 19 og á fimmtudaginn 4. mars kl 19. Ykkur er frjálst að mæta á einhvern af þessum tímum til prufu, frítt! og getið skráð ykkur í framhaldi af því.
25%-50% afsláttur fyrir nemendur Salsa Iceland (núverandi og fyrrverandi), börn og maka! Næstu tímar í byrjendanámskeiði barna (7-9 ára á árinu) eru laugardaginn kl 10:10 og miðvikudag kl 17:10. Unglinganámskeið (10-13 ára á árinu) eru ...
Áður auglýst laugardagspartý á Batteríinu hefur verið fært yfir á Thorvaldsen!
Skrifað: 23. feb. 9:16
Sökum óviðráðanlegra orsaka færum við laugardagspartýið af Batteríinu yfir á Thorvaldsen. Þar hittumst við kl. 19:30 í mat og gerum svo allt brjálað í tvöföldum sal: Bertelsstofu og rauða salnum, svo plássið er nægilegt! Thorvaldsen býður geggjuð tilboð að venju, og dansinn dunar til 01:00.