Skoða frétt: SalsaIceland nemendur fá 25% afslátt í karate hjá Þórshamri!

Skrifað: 24. feb. 10:02

Í samstarfi við hið öfluga karatefélag Þórshamar býður SalsaIceland nú nemendum sínum byrjendanámskeið í karate með verulegum afslætti. Næstu byrjendatímar fullorðinna (18+) eru á laugardaginn 27. feb. kl 13, þriðjudaginn 2. mars kl 19 og á fimmtudaginn 4. mars kl 19. Ykkur er frjálst að mæta á einhvern af þessum tímum til prufu, frítt! og getið skráð ykkur í framhaldi af því.
25%-50% afsláttur fyrir nemendur Salsa Iceland (núverandi og fyrrverandi), börn og maka! Næstu tímar í byrjendanámskeiði barna (7-9 ára á árinu) eru laugardaginn kl 10:10 og miðvikudag kl 17:10. Unglinganámskeið (10-13 ára á árinu) eru á laugardag kl 13 og á miðvikudag kl 18. Börn undir 18 ára geta nýtt frístundarkort ÍTR í Þórshamri sem státar af margföldum Íslandsmeisturum í röðum kennara sinna, ásamt 30 ára farsælli sögu.