Skoða námskeið: Byrjendanámskeið 7. apríl
Lýsing
Byrjendanámskeið sem hefst 7. apríl og er kennt tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum, í 1,5klst í senn. Óþarft er að hafa félaga til að skrá sig, (þó það sé ódýrara) enda skiptum við reglulega um félaga og þannig dansa allir við alla (nema þau pör sem vilja bara dansa við hvort annað, sem er í fínu lagi).
Við minnum alla herra SalsaIceland á að þeir sem hafa tekið byrjendanámskeið hjá okkur að þeir mega taka þátt í námskeiðinu aftur frítt, til æfinga.
Skráning hefst hér á heimasíðunni þann 20. mars, og við bendum stökum dömum á að skrá sig sem fyrst, þar sem við neyðumst til að loka námskeiðunum þegar kynjahlutföllin verða of ójöfn.
UPPFÆRT (29/03/10): Lokað hefur verið fyrir skráningar á stökum dömum á þetta námskeið. Áhugasömum dömum er velkomið að skrá sig og fara þar með á biðlista. Það er ennþá opið fyrir skráningar á pörum og stökum herrum.
Kennslustund
| Dags. | Staður | Byrjunar tími | Enda tími |
|---|---|---|---|
| 7. apríl | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 11. apríl | Þórshamar, Brautarholti 22 | 18:30 | 20:00 |
| 14. apríl | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 18. apríl | Þórshamar, Brautarholti 22 | 18:30 | 20:00 |
| 25. apríl | Þórshamar, Brautarholti 22 | 18:30 | 20:00 |
| 28. apríl | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 2. maí | Þórshamar, Brautarholti 22 | 18:30 | 20:00 |
| 5. maí | Kiwanis húsið, Engjateigi 11 | 18:30 | 20:00 |
| 9. maí | Þórshamar, Brautarholti 22 | 18:30 | 20:00 |
| 12. maí | Íþróttahús MR, Lækjargötu 7, 101 Rvk, bakhús | 18:30 | 20:00 |
Verð og skráning
- Einstaklingsverð: 19.500 kr.
- Paraverð: 35.000 kr.