Skoða námskeið: Byrjendanámskeið hefst 17. febrúar

Lýsing

Byrjendanámskeið sem hefst 17. febrúar og er kennt tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum, í 1,5klst í senn. Óþarft er að hafa félaga til að skrá sig, (þó það sé ódýrara) enda skiptum við reglulega um félaga og þannig dansa allir við alla (nema þau pör sem vilja bara dansa við hvort annað, sem er í fínu lagi).

Við minnum alla herra SalsaIceland á að þeir sem hafa tekið byrjendanámskeið hjá okkur að þeir mega taka þátt í námskeiðinu aftur frítt, til æfinga.

Skráning er hafin hér á heimasíðunni, við bendum stökum dömum á að skrá sig sem fyrst, þar sem við neyðumst til að loka námskeiðunum þegar kynjahlutföllin verða of ójöfn.

Lokað hefur verið fyrir skráningar á stökum dömum á þetta námskeið. Áhugasömum dömum er velkomið að skrá sig og fara þar með á biðlista. Það er ennþá opið fyrir skráningar á pörum og stökum herrum.

Kennslustund

Dags. Staður Byrjunar tími Enda tími
17. feb. Kiwanis húsið, Engjateigi 11 18:30 20:00
21. feb. Þórshamar, Brautarholti 22 18:30 20:00
24. feb. Kiwanis húsið Engjateigi 11 18:30 20:00
3. mars Kiwanis húsið, Engjateigi 11 18:30 20:00
7. mars Karatefélagið Þórshamar, Brautarholti 22 18:30 20:00
10. mars Kiwanis húsið, Engjateigi 11 18:30 20:00
14. mars Karatefélagið Þórshamar, Brautarholti 22 18:30 20:00
17. mars Kiwanis húsið, Engjateigi 11 18:30 20:00
24. mars Kiwanis húsið Engjateigi 11 18:30 20:00
28. mars Karatefélagið Þórshamar, Brautarholti 22 18:30 20:00

Verð og skráning

  • Einstaklingsverð: 19.500 kr.
  • Paraverð: 35.000 kr.