Skoða námskeið
Byrjendanámskeið 15. ágúst
ATHUGIÐ! Við höfum neyðst til að loka fyrir skráningar á stökum dömum á námskeiðið. Enn er opið fyrir skráningu á pörum og stökum herrum. Áhugasömum dömum sem vantar herra er bent á að skrá sig stakar eða að senda okkur póst. Þær fara þá á biðlista. Þeim er einnig bent á að annað byrjendanámskeið sem kennt verður 1x í viku hefst í lok ágúst, og hafa þær forgang á það námskeið þegar skráning hefst.
Byrjendanámskeið sem hefst 15. ágúst og er kennt tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum, í 1,5 klst í senn. Óþarft er að hafa félaga til að skrá sig, (þó það sé ódýrara) enda skiptum við reglulega um félaga og þannig dansa allir við alla (nema þau pör sem vilja bara dansa við hvort annað, sem er í fínu lagi).
Við minnum alla herra SalsaIceland á að þeir sem hafa tekið byrjendanámskeið hjá okkur að þeir mega taka þátt í námskeiðinu aftur frítt, til æfinga.
Skráning er hafin hér á heimasíðunni, við bendum stökum dömum á að skrá sig sem fyrst, þar sem við neyðumst til að loka námskeiðunum þegar kynjahlutföllin verða of ójöfn.
Fyrsta kennslustund: 15. ág.
4c, fyrri hópur
Þann 16. ágúst förum við af stað með 4. stigs námskeið, c) hluta. Hér fara Mike og Edda í kúbanskt salsa á lengra komnu stigi, ásamt Rueda de Casino og grunnskrefunum í rumbu. Kíkið endilega á umfjöllun um mismunandi afbrigði salsa hér. Gjaldgengir nemendur á 4c eru þeir sem lokið hafa 3. stigi, 4a og 4b er ákjósanlegt, en engin skylda. Á 4c er krafist skráningar í pörum og við bendum á salsakvöld, námskeið og facebook sem vettvang til að finna sér félaga. Skráning fer fram í pörum og herrar fá "2 fyrir 1" og manna tvær dömur. Lesa má um þetta fyrirkomulag hér . Þið sem skráið ykkur án félaga á netinu, eða sendið okkur póst skráist á biðlista og fáið þá félaga ef við finnum slíkan fyrir ykkur.
Fyrsta kennslustund: 16. ág.
4c, seinni hópur
16. ágúst förum við af stað með 4. stigs námskeið, c) hluta. Hér fara Mike og Edda í kúbanskt salsa á lengra komnu stigi, ásamt Rueda de Casino og grunnskrefunum í rumbu. Kíkið endilega á umfjöllun um mismunandi afbrigði salsa hér. Gjaldgengir nemendur á 4c eru þeir sem lokið hafa 3. stigi, 4a og 4b er ákjósanlegt, en engin skylda. Á 4c er krafist skráningar í pörum og við bendum á salsakvöld, námskeið og facebook sem vettvang til að finna sér félaga. Skráning fer fram í pörum og herrar fá "2 fyrir 1" og manna tvær dömur. Lesa má um þetta fyrirkomulag hér . Þið sem skráið ykkur án félaga á netinu, eða sendið okkur póst skráist á biðlista og fáið þá félaga ef við finnum slíkan fyrir ykkur.
Fyrsta kennslustund: 16. ág.
3c, fyrra holl
Efni námskeiðisins er Cuban style salsa, þar sem farið er í undirstöðuatriði kúbansks stíls, nýtt grunnspor kemur til sögunnar og einfaldar fléttur eru kenndar. Einnig fá nemendur tækifæri til að tileinka sér grunnatriði rueda de casino.
Athugið, hér er einungis skráð í pörum, og nemendum SalsaIceland er bent á að tala sig saman á námskeiðum/salsakvöldum/facebook til að finna sér félaga.
Áhugasamir stakir aðilar geta skráð sig án félaga eða sent okkur póst til að komast á biðlista. Þeir verða þá látnir vita þegar/ef við finnum fyrir þá félaga.
Hér er í boði 2 fyrir 1 tilboð fyrir strákana – þeir fá tvöfaldan tíma í hverri kennslustund námskeiðsins, og dansa í fyrra holli og seinna holli. Inn á milli holla er sameiginlegur hálftími. Þannig skrá dömurnar sig með félaga sínum í annað hvort fyrra eða seinna holl námskeiðsins, en herrann fær bæði hollin á verði eins. Hann getur tilgreint félaga sína á báðum hollunum, eða gefið kost á sér sem herra fyrir dömur sem vantar félaga og eru á biðlista SalsaIceland.
Hjá SalsaIceland er boðið upp á þrjú námskeið á þessu getustigi, 3. stig a), b) og c). Við vekjum athygli á því að það skiptir ekki máli í ...
Fyrsta kennslustund: 17. ág.
3c, seinni hópur
Efni námskeiðisins er Cuban style salsa, þar sem farið er í undirstöðuatriði kúbansks stíls, nýtt grunnspor kemur til sögunnar og einfaldar fléttur eru kenndar. Einnig fá nemendur tækifæri til að tileinka sér grunnatriði rueda de casino.
Athugið, hér er einungis skráð í pörum, og nemendum SalsaIceland er bent á að tala sig saman á námskeiðum/salsakvöldum/facebook til að finna sér félaga.
Áhugasamir stakir aðilar geta skráð sig án félaga eða sent okkur póst til að komast á biðlista. Þeir verða þá látnir vita þegar/ef við finnum fyrir þá félaga.
Hér er í boði 2 fyrir 1 tilboð fyrir strákana– þeir fá tvöfaldan tíma í hverri kennslustund námskeiðsins, og dansa í fyrra holli og seinna holli. Inn á milli holla er sameiginlegur hálftími. Þannig skrá dömurnar sig með félaga sínum í annað hvort fyrra eða seinna holl námskeiðsins, en herrann fær bæði hollin á verði eins. Hann getur tilgreint félaga sína á báðum hollunum, eða gefið kost á sér sem herra fyrir dömur sem vantar félaga og eru á biðlista SalsaIceland.
Hjá SalsaIceland er boðið upp á þrjú námskeið á þessu getustigi, 3. stig a), b) og c). Við vekjum athygli á því að það skiptir ekki máli í ...
Fyrsta kennslustund: 17. ág.