fréttir
Ibi kemur í septemberbyrjun til að halda hjá okkur workshop, og þá er ball líka! Ibi er nemendum SalsaIceland góðkunnur og hefur ásamt dansfélaga sínum, Marinu Prada, haldið fjöldan allan af helgarnámskeiðum hjá okkur við frábæran orðstír. Þau Ibi og Marina eru fagdansarar sem keppa og kenna um allan heim, hafa tekið verðlaun á heimsmeistaramótum í salsa og reka stærsta salsadansskóla á Norðurlöndum, SalsaAkademien. Ibi heldur workshop hjá okkur 5.-7. september, skráning er hafin hér og allar nánari upplýsingar má fá hér. Um sama leyti hefst nýtt byrjendanámskeið! Laugardagskvöldið 6. september er svo salsaball á Players sem nær hápunkti seinna um kvöldið þegar hljómsveitin Tepokinn tekur öll völd! ATHUGIÐ að hámarksfjöldi á námskeiðið verður takmarkaður og þeim lokað þegar hann næst. Við biðjum nemendur okkar því að skrá sig tímanlega, ekki síst til að skipulagning við að að halda kynjahlutföllum jöfnum sé möguleg. Rétt er að taka fram að þetta er síðasta parworkshop í salsa sem haldið verður fyrir áramót. Marina og Lautario Arturo mæta í októberbyrjun til að halda afró/rumbu workshop, og Marina kemur svo aftur til að halda lady styling maraþon í nóvember.
Byrjendanámskeið: Classic/cuban I - Annað byrjendanámskeið hefst hjá SalsaIceland sömu helgi og Ibi er með workshop-ið, þ.e. föstudaginn 5. september.Verð á námskeiðið er 10000 á einstakling, 19000 fyrir pör. Hér má sjá allar upplýsingar um námskeiðið, og hér má skrá sig.
2. stigs námskeið, kallað Classic/cuban II, hefst 14. september. Þetta námskeið er ætlað öllum þeim sem tekið hafa 1-3 námskeið hjá SalsaIceland. Við dönsum á fimmtudögum og sunnudögum, hér má sjá allar upplýsingar um námskeiðið, og hér má skrá sig.
Salsakvöld framundan! Mánudagurinn 1. september á Sólon, fimmtudagurinn 4. september á Rex, og aftur mánudagurinn 15. september á Sólon. Að venju er ókeypis prufutími fyrir byrjendur kl. 20:00 og eftir það er gólfið frítt fyrir alla salsaunnendur til miðnættis.
Sýningarhópur SalsaIceland sýndi á Menningarnótt alveg hörkuflott show eftir Pétur. Takk elsku vinir sem mættuð og studduð okkur, hér getið þið séð sýninguna. Við hlökkum til að sýna aftur, von bráðar!
Salsahópur SalsaIceland sýndi á Ingólfstorgi á 17. júní við brjálaðar undirtektir. Show-ið tókst frábærlega, hér geturðu kíkt á það, og hér líka. Takk aftur, allir sem voruð í áhorfendahópi og studduð okkur!
SalsaIceland bolirnir eru uppseldir, en við erum að panta nýja!! Ef þig langar að koma með bol úr einkaeigu og láta prenta á hann flotta SalsaIceland lógóið geturðu gert það fyrir 900kr. En þá verðurðu að hafa hraðann á og koma bolunum til okkar fyrir fimmtudag.
Myndast hefur innan SalsaIceland ruedahópur sem hittist reglulega til að dansa rueda. Endilega skelltu þér í fjörið, þú finnur hópinn á Facebook, hópurinn heitir SalsaIceland Ruedahópurinn!!
Langar þig að koma skilaboðum til félaga þinna í SalsaIceland til skila? Sendu okkur póst eða notaðu Facebook þar sem við erum öll!
Ferðasagan frá Kúbu er hér, og hér geturðu séð fullt, fullt af myndum! Athugið, enn fleiri myndir bíða birtingar :)